YouTube.com myndband af þessu

Ef það virkar ekki að hafa myndbönd hérna þá er linkur á myndbandið á YouTube.com hérna


mbl.is Ítalskur þjálfari í bann fyrir að sparka í rass kollega síns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Í nokkra leikja bann

Ég er ekki frá því að mér finnist að þegar leikmenn gera svona viljandi og það er augljóst eins og þetta var hjá herra Kút þá eigi að refsa þeim og setja þá í bann. Sérstaklega þar sem hann reyndi að brjóta það alvarlega á leikmanni að hann fengi gult spjald fyrir það. Það hefði auðvitað verið gáfulegast hjá dómaranum að fatta þetta og gefa honum ekki spjald. Eða þá gefa honum beint rautt þannig að hann fengi fleiri leikja bann.
mbl.is Kuyt kom sér viljandi í leikbann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þeir eru heimskir já

Það er ekki nema að þessir veggjakortarar séu þeim mun vitlausari að lögreglan nái þeim í þetta skiptið. Veggjakrotararnir lesa þessa frétta, sjá að það eigi að setja upp myndavélar og þá hreinlega hætta þeir bara eða mæta með eitthvað fyrir andlitinu svo þeir þekkist ekki.

Þetta er svona svipað eins og þegar lögreglan mætir með sírenurnar á fullu þegar það á að brjótast inn í eitthvað hús í bíómyndunum. Afbrotamennirnir heyra í lögreglunni í margra kílómetra fjarlægð og eru löngu farnir þegar hún kemur.

Maður hefði haldið að lögreglan væri gáfaðri en þetta. 


mbl.is Lögreglan hyggst setja upp eftirlitsmyndavélar til þess að fylgjast með veggjakroturum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grænland ekki einu sinni með?

Hvernig stendur á því að það er Grænlendingur markahæstur á HM? Sé ekki betur en að þeir séu ekki einu sinni með á HM. Þannig að það meikar lítið sem ekkert sens. Ég er ekki al vitlaus og hann er væntanlega að spila með einhverju öðru liði heldur en Grænlandi. Þá hlýtur hann að vera með ríkisborgararétt þar. Þá myndi ég bara telja hann sem íbúa frá því landi þar sem hann er að spila fyrir það land.
mbl.is HM í handbolta: Grænlendingur markahæstur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

B lög í B keppni

Þessi keppni er svo rosaleg b-keppni að það er ekkert furðulegt að það séu b-lög í henni. Flestir sungu falskt og ef þeir sungu ekki falskt þá var lagið bara lélegt. En ég meina þetta er bara það sem við vitum og því óþarfi að svekkja okkur á þessu. Við sendum b-lag í þessa b-keppni eins og flest allar aðrar þjóðir. Ég veit ekki hvað við getum líkt þessu við. Þetta er svona eins og að vera knattspyrnumaður og vera að taka þátt í utandeildinni í staðinn fyrir úrvalsdeildinni. Pælið í því ef það væri gert svona mikið úr utandeildinni eins og er gert úr þessari ömurlegu keppni. Ég myndi aldrei fyrir mitt litla líf vilja taka þátt í þessu. Ég er náttúrulega A maður og ekkert annað.
mbl.is Þrjú lög áfram í undankeppni Söngvakeppni Sjónvarpsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sundskýla úr froskum

Ég einmitt hætti að kaupa sundskýlu gerða úr froskum í sömu búð og Becks, eins og ég kalla hann, vegna ótta við að það verði hætt að framleiða FETA ost sem mér þykir afar góður.

Ástæaðan fyrir því að ég var staðráðinn í að fá mér þessa sundskýlu var einmitt að Becks gat ekki hætt að horfa á mig í þeim.

Sundskýlan var frá Christian Dior og kostaði 5 þúsund pund. 


mbl.is David Beckham hætti við að kaupa minkapels af ótta við reiði PETA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cleese í Áramótaskaupið!

Djöfull er þetta deadly blanda. Þorsteinn Guðmundsson hugsanlega eini fyndni maðurinn á Íslandi. Reyndar ekki að mati fólks eldri en 30 sem voru engan veginn hress með áramótaskaupið. Heyrði frá ófáum að skaupið hafi bara verið algjört drasl. Sjálfum fannst mér það mjög fyndið. Margir mjög hressir lúmskir brandarar í anda herra Guðmundssonar. Ólívur Ragnar Grímsson var t.d. mjög fyndinn. Ég var líka ánægður hversu margir leikarar tóku þátt í skaupinu. Góð tilbreyting frá því að Örn Árnason leiki 10 hlutverk og einhver annar úr spaugstofunni leiki hin 10 hlutverkin.

Annars missti ég af þessari Cleese auglýsingu á undan skaupinu þar sem ég var að borða ísinn minn sem ég bruggaði sjálfur. Ég fylgist spenntur með auglýsingunum á nýju ári.

Hvernig fannst fólki annars skaupið?


mbl.is John Cleese hefur ekkert á móti Íslandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Enginn mávur?

Það er næstum því jafn furðulegt að hugsa sér Schwarzenegger detta á hausinn á skíðum og þegar Fabio fékk máv í andlitið þegar hann var í rússibana. Held að það hafi náðst á myndband. Fór á YouTube að finna það. Það náðist reyndar ekki akkúrat þegar hann lenti á honum heldur bara hann allur í blóði eftir á. Getið séð það hér.

Annars hélt ég að Schwarzenegger væri hreinlega óbrjótandi en hann hefur auðvitað aðeins breyst frá því að hann var upp á sitt besta. Lítur c.a. svona út í dag (sjá til hægri) nema hann er bara fótbrotinn.

Arnold-Schwarzenegger-Young


mbl.is Schwarzenegger fótbrotnaði á skíðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...og hann beit löppina af lögreglumanni

Til þess að það sjokkeri mann eitthvað sem Tyson gerir nú til dags þá þarf eitthvað meira að gerast heldur en að hann sé handtekinn, ölvaður og með kókaín á sér. T.d. ef hann hefði bitið löppina af lögreglumanninum sem handsamaði hann þá hefði þetta verið djúsí frétt.
mbl.is Mike Tyson handtekinn ölvaður við akstur og með kókaín
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Botnlaus Pittur

Mér finnst alltaf hálf furðulegt þegar fólk er að segja frá því að þeim þyki eitthvað skemmtilegt og það sé alsælt. Þetta er eins og að segja að maður sé sáttur við matinn sem konan manns eldar og fátt fullnægi manni meira en að renna niður ljúffengum grænum baunum á sunnudegi. Að sjálfsögðu er hann alsæll með börnin sín þrjú. Annars væri hann ekki með Angelínu og hann hefði þá ekki ættleitt eitthvað af þeim sjálfur ef hann héldi að þetta yrði eitthvað leiðinlegt. En hvað er málið? Er Brad Pitt 12 ára? "Það er ógeðslega fyndið þegar litla Shiloh... tíhíhí... þori ekki að segja það... prumpar" sagði Brad Pitt flissandi eins og smástelpa. "Og svo líka þegar hin ropar... það er gebbó."

Mér finnst þetta líka svipað og þegar stjörnurnar eru að hjálpa til við eitthvað eins og eftir Tsunami kvikindið. Þá kom alltaf öðruhverju fétt um að þessi eða hinn hafi gefið gommu af pening til styrktar fórnarlömbunum. Ekki heimta ég að það komi frétt um mig ef ég gef pening. Og ekki kemur frétt um krakka sem eru að gefa allan peninginn sinn til styrktar einhverjum sem minna mega sig. Það að Brad Pitt eða einhver frægur gefi 1 milljón dollara er svona svipað eins og ég gefi 1.000kr til styrktar Fylkis í Árbænum. Og það þarf ekki að skrifa frétt um það.


mbl.is Brad Pitt ánægður í föðurhlutverkinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband